Færsluflokkur: Bloggar

Sjaldan var ég sammála Ögmundi, en núna...

... lítur út fyrir að það sé að breytast!

Ég hafna því að ganga í þessa ábyrgð. Vonandi meinar Ögmundur það með þessari loðnu, en samt nokkuð góðu ræðu.

Látum ekki plata okkur. Ef ríkisábyrgð væri raunverulega til staðar, væru Hollendingar og Bretar ekkert að reyna að kúga okkur til að skrifa núna undir ríkisábyrgð.

Getur alþingi ekki hafnað sérstakri samþykkt á ríkisábyrgð núna, en samþykkt samninginn að öðru leyti? Bretar og Hollendingar geta einfaldlega látið núverandi samning standa án staðfestingar á ríkisábyrgð og svo beðið uns ljóst væri að eignir gamla Landsbanka dygðu ekki fyrir þessu og þá gætu þeir rukkað okkur með restina á grundvelli meintrar ríkisábyrgðar. Það ætti alveg að duga þeim ef þeir eru svona vissir um að ríkisábyrgð sé til staðar skv. lögum. Það mundi aldrei reyna á þetta fyrr en eftir 5 til 10 ár, þ.a. þetta færi varla fyrir héraðsdóm fyrr en kreppan er yfirstaðin.


mbl.is Ögmundur: Hugsum um þjóðarhag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ef endurheimtur verða 50% af kröfum?

Fróðlegt væri að heyra mat Seðlabankans á þessu miðað við svartsýnni spá um endurheimtur á lánarusli Landsbankans. Þolir íslenskt efnahagslíf að endurheimtur verði t.d. 50%? Föst forsenda Seðlabankans um 75% endurheimtur, finnst mér í raun bera vott um að Seðlabankinn mæli í raun og veru ekki með að íslenskir skattgreiðendur ábyrgist mikið meira en 25% fall á þessum kröfum.


mbl.is Alvarlegt að synja Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband